LYKKE Prjónasett
Upplýsingar
LYKKE prjónasettin eru nefnd eftir norska orðinu fyrir hamingju – og það er einmitt tilfinningin sem fylgir því að prjóna með þeim. Hér sameinast hágæða efni og vönduð hönnun í fallegu og endingargóðu setti sem gerir prjónið bæði létt og ánægjulegt.
Prjónarnir eru handgerðir úr sterkum birkiviði sem gerir þá sterka og þæginlega í notkun. Þeir eru léttir, einstaklega sléttir og veita fullkomið flæði fyrir lykkjurnar – þannig að prjónið verður áreynslulaust og notalegt frá fyrstu umferð.
Þetta 13 cm (5”) útskiptanlega sett inniheldur vinsælustu stærðirnar og hentar jafnt byrjendum sem reyndum prjónurum sem kjósa að vinna innan ákveðins stærðarbils. Allt kemur saman í fallegu hulstri sem heldur utan um verkfærin á stílhreinan og skipulagðan hátt – fullkomin gjöf, líka til þín sjálfrar.
Settið inniheldur:
Prjónastærðir (13 cm / 5”):
– 3.25 mm
– 3.50 mm
– 3.75 mm
– 4.00 mm
– 4.50 mm
– 5.00 mm
– 5.50 mm
– 6.00 mm
Fylgihlutir:
– 3 snúrur (60 cm, 80 cm og 100 cm) með snúningsfestingu
– 2 tengi
– 2 lyklar
– 6 stopparar
LYKKE settin eru fullkomin blanda af fegurð, virkni og gæðum – sett sem þú grípur í aftur og aftur, hvort sem þú ert með eitt verkefni eða mörg í gangi í einu.