Merino Sport
Upplýsingar
Merino Sport er fallegt og mjúkt sport-garn frá La Bien Aimée, úr 100% Superwash merínóull. Garnið er þriggja þráða með fallegum snúningi sem gefur góða teygju, léttleika og sérstaklega fallega lykkjumynd.
Merino Sport tekur litina einstaklega vel og handlituðu litirnir fá að njóta sín til fulls. Það hentar bæði í fylgihluti og flíkur sem eiga að vera mjúkar og þægilegar beint við húðina.
Sport-grófleikinn gerir garnið aðeins þykkara en fingering-garn og því frábært fyrir peysur, vesti, sjöl, húfur og aðra fylgihluti.
Upplýsingar:
• 100% Superwash merínóull
• 100 g = 325 m
• Sport
• Prjónar: 3,25–3,5 mm
• Prjónfesta: 23–26 lykkjur á 10 cm
• Mælt með handþvotti
Gróf viðmið um magn:
Húfa: 1 dokka
Sokkar: 1–2 dokkur
Sjal: 2–3 dokkur
Peysa á fullorðinn: 5–7 dokkur
Merino Sport er handlitað í litlum skömmtum og því geta litir verið örlítið mismunandi milli litarlota. Fyrir stærri verkefni mælum við með að kaupa allt garnið í einu og jafnvel eina dokku aukalega til öryggis.