LYKKE Garnvinda
Upplýsingar
Falleg og vönduð LYKKE garnvinda, úr sjálfbærum viði, hönnuð til að gera það einfalt og ánægjulegt að vinda garn í hespur. Hér sameinast falleg hönnun og vönduð smíði.
Garnvindan er úr fallega unnum viði og hefur einstaklega hlýja og góða áferð. Hún er auðveld í uppsetningu og kemur með bómullarpoka sem er bæði hentugt til geymslu og til að taka hana með sér.
Hún festist auðveldlega við borð með borðklemmu sem er með mjúkum púðum til að verja bæði borðflötinn og garnvinduna gegn rispum. Vindan hentar fyrir garn allt að 113 g, sem gerir hana hentuga fyrir fjölbreytt verkefni og mismunandi garntegundir.
LYKKE leggur áherslu á hágæða efni og fallega, tímalausa hönnun og er þessi garnvinda gott dæmi um það.
Upplýsingar
- Litur/viðartegund: Shisam viður
- Framleiddur á Indlandi
- Hentar fyrir garn allt að 113 g
- Kemur með bómullarpoka
- Einföld uppsetning
- Borðklemma með hlífðarpúðum
- Breidd grunns: 12,7 cm
- Lengd grunns: 35,2 cm
- Lengd spindils: 12,7 cm
- Hæð klemmu: 8,3 cm
- Dýpt klemmu: 3,5 cm
Athugið að örlitlar rispur geta verið við drifhjólið á sumum garnvindum vegna samsetningar í framleiðslu. Það hefur ekki áhrif á virkni vörunnar.