Fara í upplýsingar um vöru
Cashmerino
1/12

Cashmerino

5,490 kr
Litir
Á lager
Upplýsingar

Cashmerino er einstaklega mjúkt og fallegt fingering-garn frá La Bien Aimée, þar sem merínóull og kasmír mætast í lúxusblöndu sem er bæði létt, hlý og endingargóð.

Garnið er handlitað í litlum skömmtum á vinnustofu La Bien Aimée í París og litirnir eru djúpir, lifandi og einstakir. Nylon er bætt við blönduna til að auka endingu garnsins án þess að taka frá mýktinni.

Cashmerino hentar sérstaklega vel í sjöl, peysur og önnur verkefni þar sem þú vilt létt, mjúkt og fallegt garn sem fer vel við húðina.

Upplýsingar:
• 75% Superwash merínóull
• 15% kasmír
• 10% nylon
• 100 g = 433 m
• Fingering / Light Fingering
• Prjónar: 2,5–4 mm
• Prjónfesta: 27–32 lykkjur á 10 cm
• Mælt með handþvotti

Gróf viðmið um magn:
Húfa: 1 dokka
Sokkar: 1–2 dokkur
Sjal: 2–3 dokkur
Peysa á fullorðinn: 5–7 dokkur

Athugið að Cashmerino er handlitað í litlum skömmtum og því getur verið smá litamunur á milli litarlota. Við mælum með að kaupa nóg í verkefnið í einu, sérstaklega þegar um stærri verkefni er að ræða.

Þér gæti einnig líkað við