Fara í upplýsingar um vöru
AMITAMI heklsett
1/17

AMITAMI heklsett

2,990 kr
TegundBjörn (Milo the Bear)
5 eftir
Upplýsingar

AMITAMI frá LYKKE eru skemmtileg og einföld amigurumi-heklsett sem innihalda allt sem þarf til að hekla sína eigin krúttlegu fígúru – án þess að þurfa að safna saman öllu saman áður en byrjað er.

Í hverju setti færðu garn, útsaumsgarn, 2,5 mm heklunál, stopp, nál, lykkjumerki, fyllingu og uppskrift á ensku. Allt sem þarf fyrir verkefnið kemur því saman í einum fallegum pakka.

Fígúrurnar eru litlar og meðfærilegar, um 8–11 cm þegar þær eru tilbúnar, sem gerir þær að skemmtilegu verkefni til að grípa í þegar þú vilt gera eitthvað lítið, einfalt og sætt. Settin henta öllum, en eru sérstaklega góð fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í amigurumi og svo eru þau bara einstaklega krúttleg.

AMITAMI er líka falleg og persónuleg gjöf fyrir þann sem hefur gaman af handavinnu, hekl og litlum fígúrum sem fá að verða til með eigin höndum.

Í settinu er:

  • Garn
  • Útsaumsgarn
  • 2,5 mm heklunál
  • Nál til frágangs
  • Lykkjumerki
  • Fylling
  • Uppskrift á ensku

Stærð tilbúinnar fígúru: um 8–11 cm

Þér gæti einnig líkað við