Give Back Friday - látum gott af okkur leiða 🎄

Give Back Friday - látum gott af okkur leiða 🎄

Dagana 27.–30. nóvember renna 15% af allri sölu hjá Garnikó til Jólakraftaverks Akraness, bæði í versluninni okkar að Kirkjubraut 10 og í vefverslun.

Prjón er í eðli sínu slow fashion sem snýst um handverk sem er gert til að endast. Þess vegna langar okkur ekki að ýta undir meiri neyslu í kringum afsláttadagana, heldur nýta tækifærið til að gefa eitthvað til baka og styðja nærsamfélagið okkar.

Jólakraftaverk Akraness

Jólakraftaverk er einstaklingsframtak á Akranesi sem hefur undanfarin ár hvatt þau sem hafa tök á að bæta einni aukajólagjöf við innkaupin sín.

Gjafirnar rata svo til barna og fjölskyldna sem geta þurft á smá aukastuðningi að halda yfir jólin.

Við ætlum að leggja verkefninu lið í ár og látum 15% af allri sölu Give Back Friday helgina renna til Jólakraftaverks.

Áttu hlýju til að gefa?

Þú getur líka tekið þátt með öðrum hætti.

Ef þú átt prjónaða flík sem þú vilt gefa áfram, til dæmis vettlinga, húfu, sokka eða peysu, getur þú komið með hana til okkar í Garnikó að Kirkjubraut 10.

Við sjáum svo um að koma flíkunum áfram í samstarfi við Jólakraftaverk svo þær geti ratað í jólagjafir til barna sem hafa not fyrir hlýjuna.

Í stað afsláttar gefum við áfram

Give Back Friday stendur yfir 27.–30. nóvember.

Verslaðu hjá okkur í búð eða í vefverslun og 15% af kaupunum þínum fara áfram til Jólakraftaverks Akraness.

Takk fyrir að hjálpa okkur að gefa aðeins meira áfram þessi jól. 💚

Skoða vörur